» 0 hafa sagt sína skoðun
Er bara að minna á nýju síðuna, endilega komið við og droppið á mig línu
Búið.
» 2 hafa sagt sína skoðun
Hvað er uppi??
Bara... Allt og ekkert... Komin með nýja síðu.
Ha? Ný síða??
JÁ
Í alvöru??
Já, þetta er linkurinn : www.123.is/aldy/
Endilega kíkiði.
OMG já þokkalega!
» 1 hafa sagt sína skoðun
Ég ætla að gista hjá Rebekku og við höfum það bara gott Svo daginn eftir klukkan 11 eigum við tíma í nudd. Við erum nefnilega svo heppnar að eiga svo góða vini að þau gáfu okkur tíma í heilnudd, og með því fylgir baðstofa, hjá Laugum sem er í World Class Veit samt ekki hvort að það sé hluti af WC eða hvort að það sé bara í sama húsi... kæmi mér samt ekki á óvart þó að þetta væri sami hluturinn er bara ekki klár á því skiljiði
En allavega... Við semsagt ætlum að mæta klukkutíma fyrr í baðstofuna sem á að vera algjör lúxus og slaka á fyrir nuddið hér er linkur á baðstofuna, endilega kíkið á þetta shit, þetta er samkvæmt lýsingum alveg hreint magnaður andskoti www.laugarspa.is/xodus.asp?id=156. OHHH... ÉG HLAKKA SVO TIL
Og kannski, af því að maður er í þessum fílíngnum, að maður skelli sér bara í vax í leiðinni
Svo er náttúrulega skrall á laugardaginn. Papaball Hlakka til En í öðrum fréttum má geta að ég er búin að búa hjá Þráni mínum alla síðustu viku síðan á föstudaginn, það var bara mjög gaman hjá okkur, kúr öll kvöld og skemmtilegheit. Í gær var einmitt svoleiðis kvöld. Sjónvarpsdagskráin var alveg hreint mögnuð En mín var svo þreytt að hún var bara send í rúmið klukkan hálf ellefu Dottaði yfir SEINASTA þættinum af House Eiginlega bara strax uninni þannig að við megum eiginlega reikna með því að ég hafi sofnað um tíuleytið og misst af honum öllum
Þráinn minn takk fyrir vikuna, hún var mjög skemmtileg :* *knúúúúús&margirmargirmargirkossar* lovjú
P.S. Endilega kíkið á uppfærða gullmola
» 3 hafa sagt sína skoðun
Konur 70%
Karlar 17%
Bæði betra 13%
Svo virðist sem meirihluti lesenda er fylgjandi konum í þessarri könnun. Þó eru einhverjir sem vilja meina að karlpeningurinn sé betri bílstjóri en mín skoðun er sú að það fer bara eftir einstaklingnum.
.... Flökurt... *æl* Leiðinlegi kallinn var samt ekki hérna...
Meira hef ég ekki að segja í bili nema endilega takið þátt í nýju könnuninni minni
...update...
Við erum að tala um það að það eru þrjú stykki starfsmannaklósett hérna og eitt þeirra er fyrir konur. Svo kemur maður og ætlar að fara á klósettpappír.... klósettpappír??? ha? ég ætlaði ekki að skrifa það.... bwahahahahahahaha.haheheahahíííhahaíhíhíh.... úff... sillý mí
Bött enníhú... Það sem ég vildi sagt hafa er að það er óþolandi þegar maður ætlar á kvennaklósettið og þá er búið að pissa og ekki sturta niður og EKKI búið að setja klósettseturnar niður
KARLMENN
» 7 hafa sagt sína skoðun
Gleymdi símanum mínum á Bónus vídjó á sunnudaginn og þegar ég kom og var að sækja hann þá ætlaði gaurinn ekki að trúa því að þetta væri síminn minn. Ég labba inn, segi: góða kvöldið... Ég er að sækja símann minn. (hafði hringt áður og tékkað hvort hann væri þar) Gaurinn segir: já er það?? (með kaldhæðnum róm) ég segi: já. Hann sýnir mér símann. ég segi: vei já þetta er hann og þá segir hann: já er þetta síminn þinn já... hmmm... Horfir svo rannsakandi augum á mig. Og ég segi: já þetta er síminn minn! Svo kemur stelpa fram lítur á mig og segir við gaurinn: já þetta er síminn hennar, láttu hana fá hann. Þá lætur gaurinn mig fá símann en með ólundarsvip þó og ég skokka kát út með símann minn
Verst að ég er eitthvað voða sloj í dag.... hrikalega slöpp
Rosalega leiðinlegt. Þetta sökkar !
uppfært.....
Maðurinn sem drullaði yfir mig hérna um daginn (sjá blogg að neðan) var hérna rétt áðan. Hér með veiti ég ykkur leyfi til að æla á hann ef þið sjáið hann á götum úti
Ég man liðnar sælustundir, manst þú þær? Það var svo gaman hjá okkur Ég hlakkaði alltaf svo til þegar þú varst í vændum. Við dunduðum okkur við ýmislegt. Þegar ég var lítil þá kom ég heim úr leikskólanum og dró fram barbídúkkur og hús og tók við að leika mér. En eftir smá stund þá ákvað ég að frekar hafa það rólegt með þér, tók mér bók í hönd og lagðist upp í rúm eða sófa, stöku sinnum ofaní kassa , og tók til við lesturinn.
Þegar ég eldist þá fór þetta að breytast. Þá eyddum við tímanum saman með vinunum. Þ.e.a.s.í 9. bekk þegar ég eignaðist almennilega vini. Ekki það að ég hafði ekki átt vini fyrir það... en ekki sem ég gat hangið með utan skóla líka. Síðan þá höfum við lent í ýmsum ævintýrum sérstaklega þegar ég byrjaði að drekka.
Núna hefur dregið stórlega úr stefnumótum okkar við áfengið. Ekki bara út af því að ég eignaðist kærasta heldur líka að ég hef voða lítið gaman af vikulegum djömmum. Plús þetta er líka peningasóun. Ekki það að við höfum ekki gaman af því að djamma heldur viljum við frekar gera þetta sjaldnar og hafa þ.a.l. meira gaman af því. Plús það er gott að kúra hjá Þráni mínum
VELKOMINN AFTUR FÖSTUDAGURINN MINN, GAMAN AÐ HITTA ÞIG AFTUR
Finnst ykkur það vera óviðeigandi að kalla alla elskan?? Það er kall hérna í BYKO sem segir elskan við alla. Þá er ég að tala um alla, bæði konur og kalla
Nú hefur það verið í umræðunni og gerð hefur verið könnun á þessu og segir fólk almennt að því finnist það að kalla fólk elskan og ástin vera að tala niður til fólks. Nú finnst mér það ekki. Þ.e.a.s. ef maður er að tala við manneskju sem maður elskar. Þetta er bara ein leið til að sýna væntumþykju og ást. Það eru náttúrulega mörk á þessu. Maður á ekki að vera að kalla fólk elskan bara þú veist - af því bara. Kannski er það vani hjá sumum en samt....
Hvað finnst ykkur?
» 9 hafa sagt sína skoðun
Heehe... endilega kíkið.
Það er bara eitthvað svo leiðinlegt að þegar fólk kemur inn á síðuna að það fyrsta sem það sér er bloggið fyrir neðan þetta
En já... bið að heilsa ykkur
Ég er svo pirruð að ég gæti farið að gráta. Án gríns, ég er búin að vera að berjast við grátinn hérna á kassanum.
Helvítis, fokkin drullusokkar sem hafa ekkert betra við sinn tíma að gera en að koma í Byko og vera dónalegir
Búið, þetta er helvítis búið.
» 5 hafa sagt sína skoðun
» 8 hafa sagt sína skoðun
andskotinn.